19október

Góðir hálsar



Í tilefni þess að ég er með hausinn fullan af hor og hás eins og reykingamaður til 60 ára og orkaði engu öðru en að sitja fyrir framan tölvuna þá ákvað ég að byrja að blogga á nýrri síðu. Ég er semsagt búin að dunda mér við það í allan dag að setja upp síðu sem hefur það hlutverk að taka við þessari síðu og sjá um fréttaflutning af fjölskyldunni allri.

Gjörið svo vel, hér er nýja síðan okkar.
19. október 2008 klukkan 12:45
Linda Karen Guttormsdóttir
Engin athugasemd
16október

Money is nothing



Peningar eru ekkert annað en prenntaðir stafir á tölvuskjá!!!
Sem óbeint farmhald af síðustu færslu og í ljósi kreppuástands uppi á Fróninu fagra held ég áfram með peningaumræðuna. Það ríkir ákveðið kreppuástand á heimilinu, þrátt fyrir það að fall íslensku krónunnar komi þar hvergi nærri. Það er nefnilega þanni að allar krónur, stórar sem smáar hverfa eins og dögg fyrir sólu. Það er liðin tíð að við hjónaleysin getum lagt frá okkur aurana okkar og gengið að þeim vísum á sama stað þegar á þarf að halda. Litlar lúkur og stór vakandi augu eiga hér hlut að máli og bera alla ábyrgð á lausaféskorti heimilisins.

Í stuttu máli sagt, þá er engin kreppa í sparibauk heimasætunnar!
16. október 2008 klukkan 19:21
Linda Karen Guttormsdóttir
Engin athugasemd
23september

Time is money

 Ólíkt hraðanum á fasteignamarkaðnum þegar við keyptum íbúðina hér á Ripstigen, þá tók lengri tíma að selja hana en við höfðum reiknað með. Samt sem áður þá vorum við svo sem viðbúin því að ferlið yrði eitthvað lengra en áður var vegna "tregðu" á markaðnum. Allavega, þrátt fyrir 26 einstaklinga sem skoðuðu íbúðina í fyrstu törn, þá fengum við bara tvö tilboð sem við vorum langt í frá sátt með og ákváðum því að leggja í aðra "sýningu" og setja "ástættanlegt" verð á íbúðina. Þetta þýddi að við máttum halda íbúðinni í algjöru toppstandi og spegilgljáandi í tvær vikur til viðbótar. Það var svo sem í lagi en tengdó varð að þola þryf og tiltektaráráttu á hæsta stigi fyrstu heimsóknardagna!! Við semsagt verðmerktum íbúðina sem nemur um 3.000.000 kr meira en útgangsprísinn var í byrjun, þrátt fyrir efasemdir og mótmæli fasteignasalans. Það sem meira var, við fengum eitt tilboð og bingó, íbúðin var seld!!! Við erum hoppandi glöð með söluna og guðs lifandi fegin að selja á þessum síðustu og verstu tímum....

Nú er unnið hörðum höndum í nýju íbúðinni og tengdapabbi hefur mátt púla þar og strita myrkranna á milli og Siggi Jóns lætur sitt ekki eftir liggja þegar kemur að því að munda sparslspaðann. Við droppum inn af og til, svona rétt til að sýna lit ;)

Það er semsagt "allt på gång" og enginn tími aflögu fyrir vini og vandamenn. Svoleiðis verður það sjálfsagt eitthvað áfram.

23. september 2008 klukkan 19:56
Linda Karen Guttormsdóttir
4 athugasemdir
10september

Lífið fullkomnað!!! Eða svo gott sem....

R.E.M.






















...enda manneskjan búin að sjá átrúnaðargoðin "live" á sviði ;) 

Ó-mægoddd, tónlekarnir voru alger snilld og Michael söngvari stóð rúmlega undir væntingum, söng eins og engill og lét sem óður væri á sviðinu.
Ég hreyfst með frá fystu mínótu og sveif aftur í tímann. Skyndilega var ég stödd í Atlavík, í útilegu með "Egilsstaðagenginu". Við vorum nýbúnar að tjalda bláa "A" tjaldinu mínu sem ég fékk í fermingargjöf tveimur árum áður, opna snakkpokana og setja "Automatic for the people" í rauða kasettutækið mitt. Þarna láum við umvafðar fegurð Fljótsdalsins og hita sólarinnar og hlustuðum á UPPÁHALDS hljómsveitina okkar sem við vorum nýbúnar að uppgötva.....

....en aftur til nútímans og Globen þar sem hlutirnir voru að gerast og trilltur líðurinn naut "eyrnakonfektsins" sem var akkurat passleg blanda af nýjum og gömlum lögum. Það var nú samt þannig að ég hefði viljað heyra miklu fleiri lög og ég saknaði þess sérstaklega að heyra ekki "Everybody Hurts",  "Losing my religion" og "Nightswimming"

Þetta var semsagt alveg frábær kvöldstund sem ég átti með R.E.M. og hinum vinum mínum.
10. september 2008 klukkan 22:44
Linda Karen Guttormsdóttir
5 athugasemdir
06september

Rennblautt hálfmaraþon



Jæja, þá er ég komin í mark, búin að fá mér að borða og lögst upp í sófa og það sem meira er, mér líður bara alveg stór vel!!!

Þetta var vissulega það allra blautasta hlaup sem ég hef hlaupið en þeim mun skemmtilegra. Ég tók ekkert eftir rigningunni eftir startið og naut mín alla leið, eða svona nánast, stífnaði vel í kálfunum þegar um 4 km voru eftir en það slapp allt til og hvorugur kálfinn rifnaði!!!
Ég kom í mark á tímanum 1.44.36 sem er mun betri timi en ég þorði að gera mér von um. Ég stefndi á að hlaupa undir 1.55.00 en vonaði auðvitað að ég yrði nær 1.50.00 eða 1.45.00 en var ekki svo bjartsýn að trúa því að mér tækist að vera undir þeim tíma.

Þegar hlaupið var hálfnað, stóð lítill og sætur vatnsberi á hliðarlínunni og rétti mér vatnsbrúsann minn. Þegar ég var búin að svala þorstanum og rétta hjálparhellunni brúsann aftur, fékk ég kveðjukoss og kvattningarorð. "Mamma, mamma, mamma...." heyrði ég kallað á eftir mér. Þessi góði sopi og þessi innilega kvattning fyllti mig krafti sem enntist mér út hlaupið.

Við matarborðið hafði Hekla Sól frá mörgu að segja og hún lýsti upplifun dagsins af áfergju, með tilheyrandi handapati og upphrópunu. Eftir matinn tók hún sig svo til og hljóp fram og til baka í stofunni á fullum spretti og leiddist ekki þegar við "hejuðum" á hana. "Hekla, Hekla, Hekla". Hún hljóp og hljóp og hljóp og hætti ekki fyrr en hún þurfti á vatni að halda. Ætli þetta hafi ekki verði um 15 mínótur samfleitt. 

það er því nokkuð ljóst að börnin læra það sem fyrir þeim er haft og að þessu sinni er það bara hið besta mál ;)

 
06. september 2008 klukkan 20:44
Linda Karen Guttormsdóttir
5 athugasemdir
06september

Hálft maraþon



Nú er bara einn og hálfur tími þangað til að ég hleyp af stað í þeim tilgangi að klára 21,1 km með stæl. Það er svo sem allt í góðu með það, nema hvað það er GRENJANDI RIGNING ;( Og ég sem hef alltaf vanið mig á að hlaupa bara þegar sólin skín og vindhraðinn er undir 2 metrum á sekúndu.

Ég verð bara að láta mig hafa það, það er víst ekki aftur snúið.
06. september 2008 klukkan 13:03
Linda Karen Guttormsdóttir
1 athugasemd
02september

Að safna íbúðum

Hús á hús ofan

Í gær bættist ein íbúðin við í safnið og nú eigum við þrjú stykki þak yfir höfuðið!!! Það er nátturulega bara rugl enda vinnum við hörðum höndum að því að losa okkur við íbúðina hér á Ripstigen en það tekst vonandi í lok vikunnar. Við "höldum þumlunum" eins og sagt er hér og vonumst eftir góðri sölu. Það er eins og fyrri daginn, því meira sem fæst fyrir íbúðina,  því betra!!!! Markaðurinn er því miður ekki sérlega söluvænlegur, þó svo að ástandið sé MUN skárra en gengur og gerist á Íslandi. Á meðan svo er örvæntum við ekki ;)

Það er semsgat mikil vinna framundan og við reiknum með næstu tveim mánuðum í þrotlaus niðurrif og uppbyggingarvinnu á Bergshamra Allé. Það má því búast við vinnulúnum höndum og bláum baugum undir augum en við trúum því að þetta endi alltsaman vel og við verðum búin að ná okkur fyrir jól.
02. september 2008 klukkan 06:04
Linda Karen Guttormsdóttir
1 athugasemd
01september

Settu marki náð og gott betur

Tjejmilen 2008

Tjejmilen halupið var í gær og ég tók að sjálfsögðu þátt enda góð æfing fyrir hálfmaraþonið næstu helgi.
Ég setti mér auðvitað markmið og stefndi á að hlaupa undir 48 mínótum. Ég náði því og gott betur og fór þetta á 47.01 mínótu. Ég er auðvitað bara nokkuð ánægð með árangurinn þó svo að ég hafi ekki náð á pall !!! Við erum að tala um bætingu upp á 3.21 frá hlaupinu í fyrra og þá kom ég númer 600 og eitthvað í mark. Núna var ég í 357 sæti af rúmlega 25.000 konum!!! EF (með STÓRU E) keppt hefði verið í "nafnagrúppum" eins og stundum er gert og skipt niður eftir kyni og aldri, þá hefði ég fengið brons, þar sem ég var í 3-4 sæti af "Lindunum

Hér má sjá úrslitin í hópi "Linda"  http://resultat.marathon.se/TM2008/start/index.cfm?ShowResults=Yes&Lan_ID=1&RequestTimeOut=600

Sunna grimma keppti líka og stóð sig ekki síður vel. Hún kom í mark rúmlega 4 mínótum undir settu markmiði og getur þess vegna verið afar stollt af frækilegum árangri sínum. Til gamans má geta þess að hún hefði sigrað sína "nafnagrúppu" og þar með er hún eiginlega búin að toppa minn árangur;)

Það er ekki að spyrja að henni Sunnhildi....
01. september 2008 klukkan 10:50
Linda Karen Guttormsdóttir
3 athugasemdir
28ágúst

Silfur og fálki

Fyrst unnu þeir silfrið, svo unnu þeir hjarta þjóðarinna, forsetans og Dorrit og fengu fálkaorðu í kaupbæti...

Stollt þjóðarinnar

Þrotlausar æfingar liggja að baki þessum verðlaunum en ekkert lið nær svona langt án þess að kunna listina að fagna.
Hér má sjá persóurnar á bak við sigursælt lið Íslands. Svona eru strákarnir okkar inn við beinið 
 http://www.youtube.com/watch?v=3ngXshjSHYY
28. ágúst 2008 klukkan 19:14
Linda Karen Guttormsdóttir
1 athugasemd
28ágúst

Óvissuástand

Spurningarmerki Það eru engar ýkjur þegar ég ég tala um að ákveðið óvissuástand ríki á heimilinu. Það veit jú enginn hvernig allt á eftir að ganga með nýju íbúðina og hvort iðnaðarmennirnir eigi yfirleitt eftir að mæta á svæðið Óákveðinn. Aðal spennan og mesta óvissan er nú samt sem áður hvort og þá fyrir hversu margar krónur íbúðin okkar á Ripstigen selst!!!

Það verður spennandi að sjá og nú í kvöld verður hálftíma löng VIP sýning, á sunnudaginn verður opið hús í 3 klukkutíma og svo hálftíma sýning á mánudag. Ef allt gengur upp og áhuginn verður eins og við vonumst til, þá verður íbúðin seld fyrir lok næstu viku.

Så nu holler vi tummarna...
28. ágúst 2008 klukkan 13:09
Linda Karen Guttormsdóttir
1 athugasemd

Aðalvalmynd

Ef þig langar að hringja eða senda mér pakka...

Ripstigen 3, 3 hæð
17074 Solna
Svíþjóð
GSM: 0046-768918030
Heimasími: 0046-851483800

Auglýsing

Klukkan

Djurgården og Alsvenskan í stórum dráttum

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...